FRÉTTABRÉF VORÖNN 2012
FEBRÚAR
Grímutímar laugardaginn 25. febrúar
Laugardaginn 25. febrúar verða grímutímar. Þá geta krakkarnir mætt í grímubúningum í sína venjulegu tíma. Farið verður í dansana sem þau eru að læra en að sjálfsögðu verður sprellað aðeins líka.
MARS
Danskeppni 10. og 11. mars – Danssýning fyrir 6 ára og eldri
Íslandsmeistaramót með frjálsri aðferð í 10 dönsum verður haldið 10. og 11. mars í Haukahúsinu að Ásvöllum í Hafnarfirði. Nánari dagskrá verður kynnt síðar. Á flestum danskeppnum eru þeim sem ekki keppa boðið að sýna dans. Dansarnir sem eru sýndir eru enskur vals og cha cha cha. Nánari upplýsingar hjá Ragnari.
NEMENDASÝNING DANSSKÓLANS – 17. mars kl. 11
Nemendasýning dansskólans verður haldin laugardaginn 17. mars í íþróttahúsi Kennaraháskólans við Háteigsveg. Eins og á síðasta ári þá verðum við með borð og stóla niðri á gólfinu til viðbótar við stúkuna. Allir hópar munu vera með atriði og erum við þegar byrjuð að skipuleggja hvaða hópar munu dansa hvað. Dagskrá verður send út þegar nær dregur. ATH síðustu danstímar á vorönn hjá þeim sem ætla ekki að keppa eða sýna á mótinu í lok apríl verða laugardaginn 31. mars. Nánari upplýsingar hjá Ragnari og Kristínu.
Fullorðinsdansiball í dansskólanum
Dansiball verður haldið í dansskólanum laugardagskvöldið 24. mars frá kl 21. Danssýning verður um miðbik ballsins. Skráning er hafin hjá Ragnari og Kristínu.
APRÍL
Æfingar fyrir Íslandsmeistaramótið 29. og 30. apríl - Laugardalshöllin
Æfingar fyrir Íslandsmeistaramótið byrja mánudaginn 2. apríl. Öllum sem ætla að keppa eða sýna á Íslandsmeistaramótinu er boðið að mæta á æfingarnar. Æfingaplanið verður gefið út þegar nær dregur en flestir tímar halda sér. Nánari upplýsingar hjá Ragnari.
VOR OG SUMARÆFINGAR
Við verðum með opna danstíma í vor og sumar fyrir krakka 6 ára og eldri sem hafa sýnt og keppt í vetur. Nánari upplýsingar hjá Ragnari.
Kærar kveðjur,
Ragnar, Kristín, Linda og Jónsi

Dansskóli Ragnars Sverrissonar
Bíldshöfða 18 – 110 Reykjavík – sími 586-2600
www.dansskoliragnars.is
Dagsetningar fyrir vorönn
Fyrsti kennsludagur vorönn 2012 laugardaginn 7. jan
RIG laugardaginn 21. og sunnudaginn 22. jan - Laugardalshöll
5 og 5 dansamót laugardaginn 11. feb og sunnudaginn 12. feb - Laugardalshöll
Grímutímar laugardaginn 25. feb - dansskólinn
10 dansa mót laugardaginn 10. mars og sunnudaginn 11. mars - Laugardalshöll
Fullorðinsball laugardaginn 24. mars – dansskólinn
Nemendasýning - laugardaginn 17. mars kl 11.00 – Íþróttahús Kennaraháskólans við Háteigsveg
Blackpool keppnin – 7. apríl til 14. apríl 2012
Íslandsmeistaramót í grunnsporum og Íslandsmeistaramót í 5 og 5 dönsum með frjálsri aðferð - laugardaginn 28. apríl og sunnudaginn 29. apríl - Laugardalshöllin.
Síðasti kennsludagur fyrir almenna nemendur 31. mars en þeir sem ætla að sýna eða keppa í lok apríl halda áfram.